Gerði þessi flottu blóm úr nýju hekl bókinni minni, og fannst alveg tilvalið að setja þau á eyrnabönd fyrir stelpurnar mínar.
Eyrnaböndin er prjónuð úr Alfa með prjónum nr.7 með perluprjóni. Blómin eru úr Kitten mohair.
Á minna bandinu fitjaði ég upp 12 lykkjur en á því stærra 16 lykkjur, og mátaði bara öðruhvoru þangað til þau voru orðin nógu stór.
Og svona lítur þetta út þegar sú litla setur það á sig sjálf
Svo ein dúllu mynd í lokin, þær eru svo góðar vinkonur, Ása er svo þolinmóð og góð alltaf við litlu systur sína
Takk fyrir dásamlegt blogg, er gjörsamlega húkkt!
Hæ, mig langar mikið til að prjóna svona en kann ekki að gera blómin…einhver séns á að þú gætir gefið mér uppskriftina af þeim ?
kær kveðja,
uppskriftin af blómunum er úr bók sem ég á, ég á ekki skanna en ég get tekið mynd af uppskriftinni, sendu mér mail-ið þitt á sigrunhaf@gmail.com ef þú vilt fá myndina