Ég er nú ekki mikið fyrir páskaskraut, en finnst voðalega gaman að gera svona smá fínt.
Ég gerði þessa kanínu fyrir páskana í fyrra og ákvað að skella í eina skær bleika núna. Þetta verk tekur enga stund og það er alltaf svo gaman að sjá hvernig þæfingin kemur út !![Photo1[4]](http://obbosi.files.wordpress.com/2011/04/photo14.jpg?w=500&h=373)
Ég heklaði fullt af gulum blómum og límdi á greinarnar, sést ekki vel á myndum en þetta kemur rosalega vel út
Hérna er uppskriftin af kanínunni: Kanína
Ég var búin að þýða uppskriftina og læt hana fylgja með
Búkurinn
*Fitjið upp 36 lykkjur
*Notið 3 sokkaprjóna
*Prjónið 25 umferðir , má vera fleiri eða færri, bara hvað þú vilt hafa hana stóra
*Byrjið 26. umferðina á því að prjóna 2 lykkjur saman á öllum 3 prjónunum endurtakið þetta í 4 hverri umferð.
*Þegar 12 lykkjur eru eftir er hálsinn prjónaður, prjónið 12-16 umferðir
Hausinn
Þú ættir að vera búin að prjóna uþb. 72 umferðir núna
Umf 73:* prjónið 1 lykkju, prjónið framan og aftur í næstu lykkju* endurtakið þar til 18 lykkjur eru á prjónunum.
Umf 74: prjónið
Umf 75: eins og umf. 73 (27 lykkjur)
Umf 76-78: prjónið
Umf 79: *Prjónið 1 lykkju, prjónið næstu 2 saman* Endurtakið út umferð (18 lykkjur)
Umf 80: prjónið
Umf 81: *Prjónið 1 lykkju, prjónið næstu 2 saman* Endurtakið út umferð (12 lykkjur)
Umf 82: Prjónið
Nú eru eyrun prjónuð, það eru notaðar 6 lykkjur til þess, opinn prjónn
Fyrsta eyra
Notið aðeins 6 lykkjur (eyrun eru prjónuð í hring)
Umf 1: prjónið
Umf 2: Prjónið 1, aukið út um eina, prjónið 4, aukið út um eina, prjónið 1
*Endurtakið umf 1 og 2 þangað til 18 lykkjur eru á prjónunum
Prjónið 4 umf.
Í næstu umferðum eru alltaf 2 síðustu lykkjurnar á prjónunum prjónaðar saman þangað til 3 lykkjur eru eftir
Næsta eyra
Alveg eins og hitt
p.s afsakið gæðin á myndunum, var eitthvað löt og tök þær á símann minn
![photo[1]](http://obbosi.files.wordpress.com/2011/04/photo1.jpg?w=500&h=669)

