Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að breyta gömlum fötum í eitthvað nýtt og yfirleitt geri ég barnaföt. Ég keypti mér æðislegt snið frá Minikrea hjá henni Jónu, hún er með facebook síðu fyrir sniðin, og hérna er hægt að skoða þau líka Minikrea.dk.
Ég notaði stuttermabol af mér sem ég var hætt að nota og einn langerma, sem var orðinn of lítill á mig *hóst*
Það sem er svo þæginlegt við að nota gömul föt er að það þarf yfirleitt ekki að sauma eins mikið, ég td notaði neðri helminginn af stuttermabolnum þannig að ég þurfti ekkert að falda hann, notaði líka neðir hlutann af ermunum, þannig að ég þurfti ekkert að sauma þær saman eða að falda.. snilld





þessi kjóll er nú bara æði, ég á tvær dætur (3 og 4 ára) og nokkra boli sem virðast hafa hlaupið í þvotti (hehehe)…..svo á ég æðislega saumavél svo nú þarf ég bara að fara að skoða snið :O)
frábær kjóll, og flott hugmynd. Sniðugt sem jólagjafir fyrir næstu jól. Tíminn líður nú svooo hratt
Elska bloggið þitt.
Langar að læra að sauma og mér finnst svo æðisleg öll verkefnin sem ég hef séð þig gera á stelpurnar þínar. Klæjar alveg í puttana að fara að sauma.
Vá! Flott hugmynd. Hlutir sem maður getur gert með því að sauma eru endalausir! Það væri svo gaman að læra að sauma!