Þessi skokkur vann prjónasamkeppni sem var haldin á prjóniprjón heimasíðunni. Ég snaraði í hann eina kvöldstund og var búin með hann næsta dag. Ótrúlega gaman að prjóna hann og svo er hann svo svakalega flottur líka.
Ég notaði einfaldann plötulopa eins og uppskriftin segir, en ég hugsa að ég prufi að nota eitthvað annað garn í hann seinna, hann er svo flottur í laginu, svona blöðrulag.
Hérna er uppskriftin: Lítill skokkur Vilborgar
Ég gerði stærð 9 – 12 mánaða, núna er Andrea dóttin mín 10 mánaða og kjólinn er eins og vesti ( hún er örugglega 6 mánaða á myndinni), þannig að ég myndi síkka uppskriftina aðeins næst. Annars er hann líka rosalega flottur sem vesti 🙂
Færðu inn athugasemd